No name | |||||||||||||||||||||||
age:26 gender:male location:earth
ÍF Guðrún Ásdís "blogg" The Gang Ninnó Berglind
blogger
|
Já ég veit ......ætlaði að vera duglegur ... en það er bara búið að vera svo mikið að gera að ég hef bara ekki haft tíma til að skrifa..... Helgin var samt frekar mikil stuð helgi ballið byrjaði á föstudag þegar FC Ísland spilaði sinn fyrsta fótboltaleik á tímabilinu, við byrjuðum eins og við enduðum´, það er á öruggum sigri þrátt fyrir að sumir hafi byrjað tímabilið full mikið eins og það fyrra endaði þ.e. með að klippa niður saklausan sóknarmann með látum og það innan vítateigs....(humm), en það var í lagi því þessi sami hafði klippt niður svo marga á svo mörgum öðrum stöðum á vellinum að hann átti inni að fá að klikka smá. Leikurinn vannst eins og áður sagði en það kostaði krampa í lappirnar marin læri, og bilað hné, en allt var þetta þess virði. Um kvöldið var svo haldið í partí hjá Ómari og ....... en þeir félagar voru með innflutningspartí, ég mætti fjall hress í gangsteroutfittinu mín og pósaði fyrir þá sem vildu .... ég er búinn að tileinka mér svona gangsterlook, bara svona til að grípa í þegar ég er á ferð í hverfinu mínu ... þ.e. Nörrebro .....gettoinu..... besta stað í bænum. Partíið þróaðist eins og við mátti búast þar sem fólki er boðið að drekka frítt af veigum ölguðsins þ.e. útí almenna háreysti, dans og jú gangsterpósur.|
Comments:
Skrifa ummæli
|