No name | |||||||||||||||||||||||
age:26 gender:male location:earth
ÍF Guðrún Ásdís "blogg" The Gang Ninnó Berglind
blogger
|
Spurning dagsins .... þetta er hlutur sem ég er búinn að vera að velta fyrir mér...afhverju, það kemur hér. 1 Maí er þekktur fyrir tvennt í mínum huga. í fyrsta lagi þá er þetta afmælisdagur hinnar yndislegu konu minnar og í öðrulagi þá er þetta baráttudagur verkalýðsins. Kannski fleiri sem þekkja þennan dag sem baráttudag verkaýðsins en hitt en ég er nú ekki viss hvort tilefnið er merkilegra í því samfélagi sem ég hrærist í. Á þessum ágæta degi 1. maí fór ég ásamt félögum mínum hér í köben að í fælledparken sem er stórt svæði þar sem fólk getur komið saman til hinna ýmissa hátíðarhalda, við töltum af stað í yndislegu veðri frekar tuskulegir eftir partí næturinnar en vöknuðum fljótt til lífsins við il sólarinnar sem baðaði þá sem það vildu í björtum sólargeislum .... eftir að hafa fundið Nettó búð og fjárfest í kassa af bjór og smá súkkulaði þá fundum við innganginn að garðinum og röltum inn .. hálf (baráttu)rauðir í framan í anda dagsins og/eða eftir burðinn á kassanum fundum við okkur stað á iðagrænum völlunum og komum okkur fyrir. Við spörkuðum í bolta drukkum öl og höfðum uppi almenna kátínu, það fjölgaði smásaman í hópnum og það var sparkað minna í bolta og farið meira í ölið, allt gott og blessað við það þar sem þetta virtist vera sú hefði sem danir hafa skapað sér. Einhverstaðar/einhverntímann þennan dag fór ég að velta fyrir mér þessu tilefni sem þarna var .. þ.e. 1 maí. þetta er dagur sem í minni minningu hefur oft einkennst af baráttu og kröfugöngum þar sem kapítalistarnir hafa verið grátbeðnir um að gefa meira til almúgans og verkafólksins svo að börnin þeirra geti líka farið í bíó, keypt playstation, borðað nammi og jafnvel gert þetta þannig að nú þurfi pabbi og mamma ekki lengur að vinna fram nótt til að börnin geti takið þátt í lífgæðakapphlaupinu heldur hefur verið barist fyrir því að þau þurfi að vinna minna fyrir meira .....sem mér finnst í eðli sínu mjög sanngjarnt.|
Comments:
Skrifa ummæli
|